Á morgun lukkan 18:45 að íslenskum tíma, 20:45 að starðartíma, verður flautað til leiks Hollands og Íslands.
Samkvæmt upplýsingum frá hollenska knattspyrnusambandinu hafa verið seldir um 47 þúsund miðar á leikinn sem fram fer á Amsterdam Arena.
Leikvangurinn tekur 52.960 manns í sæti og er búist við því að þeir miðar sem eru eftir seljist upp. Sem kunnugt er verða á milli 3 og 4 þúsund Íslendingar á leiknum.
Fótbolti.net mætti á völlinn í morgun og fylgdist með æfingu íslenska landsliðsins eins og sjá má í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir