Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   lau 02. september 2017 15:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: Njarðvík tók stórt skref upp í Inkasso-deildina
Kenneth Hogg (hér fyrir miðju).
Kenneth Hogg (hér fyrir miðju).
Mynd: Njarðvík
Njarðvík vann Vestra í 2. deild karla í dag. Það styttist í að Njarðvíkingar geti byrjað að fagna sæti sínu í Inkasso-deildinni.

Eftir stundarfjórðung var staðan orðin 2-0 fyrir Njarðvík, en það var Kenneth Hogg sem skoraði bæði mörkin.

Birkir Freyr Sigurðsson kom Njarðvík í 3-0 í upphafi seinni hálfleiks, en stuttu síðar minnkaði Pétur Bjarnason muninn. Eftir það voru fleiri mörk ekki skoruð og lokatölur 3-1 fyrir Njarðvík.

Njarðvík er núna með 41 stig og miðað við það hvernig þeir eru að spila þá styttist í að Inkasso-sætið verði tryggt. Vestri hefur átt í vandræðum í sumar og þeir eru í harðri fallbaráttu.

Í hinum leiknum sem var að klárast, þá vann Huginn sigur á Völsungi. Huginn á enn tölfræðilegan mögulega á að komast upp, en sá möguleiki er mjög, mjög lítill. Völsungur er um miðja deild.

Njarðvík 3 - 1 Vestri
1-0 Kenneth Hogg ('7)
2-0 Kenneth Hogg ('15)
3-0 Birkir Freyr Sigurðsson ('53)
3-1 Pétur Bjarnason ('56)

Huginn 2 - 1 Völsungur
1-0 Rúnar Freyr Þórhallsson ('45)
1-1 Arnþór Hermansson ('62)
2-1 Alexander Gunnar Jónsson ('69, sjálfsmark)

Markaskorarar af urslit.net
Slapp
banner
banner