Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 02. október 2014 08:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Guardian 
Fellaini gæti spilað gegn Everton
Fellaini er að snúa til baka úr ökklameiðslum.
Fellaini er að snúa til baka úr ökklameiðslum.
Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini nálgast óðum endurkomu sína úr meiðslum og eru líkur á að hann muni koma við sögu þegar Manchester United mætir Everton um helgina.

Belginn snéri aftur til æfinga í byrjun vikunar, en hann hefur verið frá síðan í ágúst vegna ökklameiðsla.

Ander Herrera er með brákað rifbein og er því ljóst að United veitir ekki að liðsstyrk á miðvallarsvæðinu.

Þá er Phil Jones byrjaður að æfa sem og Michael Carrick.
Athugasemdir
banner
banner