Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. október 2014 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: BBC 
Ramsey og Allen ekki með welska landsliðinu
Aaron Ramsey er meiddur.
Aaron Ramsey er meiddur.
Mynd: JóiLeeds
Aaron Ramsey og Joe Allen missa báðir af leikjum Wales í undankeppni EM síðar í þessum mánuði.

Wales mætir þá Bosníu og Herzegóvínu áður en Kýpverjar mæta til Cardiff, þar sem báðir leikirnir fara fram.

Ramsey er meiddur í læri á meðan Allen hefur ekki spilað síðan hann meiddist í 2-1 sigri Wales á Andorra snemma í september.

Þá er James Vaughan einnig meiddur og eru sex nýliðar í leikmannahópi Chris Coleman, landsliðsþjálfara Wales, fyrir leikina tvo.
Athugasemdir
banner
banner
banner