Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 02. október 2014 11:30
Magnús Már Einarsson
Roma líklegasti áfangastaður Konoplyanka
Konoplyanka er í landsliði Úkraínu.
Konoplyanka er í landsliði Úkraínu.
Mynd: Getty Images
Roma er í bílstjórasætinu í baráttunni um Yevhen Konoplyanka kantmann Dnipro samkvæmt fréttum frá Ítalíu.

Konoplyanka var nálægt því að ganga í raðir Liverpool í janúar en ekkert varð af félagaskiptunum.

Þessi 25 ára gamli leikmaður verður samningslaus næsta sumar og Dnipro gæti selt hann í janúar.

Faðir og umboðsmaður leikmannsins ku hafa rætt við forráðamenn Roma á dögunum.

Liverpool, Tottenham og West Ham hafa einnig verið orðuð við leikmanninn en Ítalía virðist núna vera líklegasti áfangastaðurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner