Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. október 2014 07:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Daily Mail 
Segir Real Madrid hafa boðið 116 miljónir punda í Neymar
Neymar.
Neymar.
Mynd: Getty Images
Faðir Brasilíumannsins Neymar, framherja Barcelona, fullyrðir að Real Madrid hafi boðist til að kaupa son sinn á 116 milljónir punda áður en hann fór til Barcelona.

Frá þessu greindi hann fyrir spænskum rétti, en dómsmál stendur nú yfir þar sem forráðamenn Barcelona eru sakaðir um að hafa staðið ólöglega að kaupunum.

Segir faðir Neymar að sonur sinn hafi hafnað betri tilboði og nefndi hann þá tilboðið frá Real Madrid. Ljóst er að hefði orðið að þeim kaupum væri Neymar langdýrasti leikmaður sögunnar.

Barcelona keypti Neymar frá Santos á síðasta ári í samningi sem hljómaði í heildina upp á 50 milljónir punda og eru forráðamenn Barcelona sakaðir um skattsvik í tengslum við kaupin.
Athugasemdir
banner
banner
banner