Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. október 2017 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ancelotti ætlar í frí til næsta sumars
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti var rekinn frá Bayern München eftir þriggja marka tap gegn PSG í Meistaradeildinni.

Ítalinn ætlar að taka sér frí til næsta sumars en hann hefur nú þegar verið orðaður við Milan, Chelsea, Roma og ítalska landsliðið.

„Ég ætla að hvíla mig næstu tíu mánuði, þannig ég mun ekki taka við neinu félagi fyrr en þá," sagði Ancelotti við fréttamenn í Jerúsalem áður en hann var spurður út í brottreksturinn.

„Það er líklegast best að tjá sig ekki um brottreksturinn að sinni."
Athugasemdir
banner
banner
banner