Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 02. desember 2015 06:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Martinez: Frábært að vera komnir í undanúrslit
Roberto Martinez.
Roberto Martinez.
Mynd: Getty Images
Roberto Martinez, þjálfari Everton, var að vonum glaður eftir 2-0 sigur sinna manna gegn Middlesbrough í 8 liða úrslitum deildabikarsins í gær.

Liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum keppninnar með sigrinum.

„Þetta var frábært tilefni, að vera áfram í bikarnum. Við þurftum að vera þroskaðir og stjórna leiknum og við gerðum það virkilega vel, sérstaklega eftir Bournemouth úrslitin."

„Það er frábær tilfinning að vera komnir í undanúrslit."

„Middlesbrough voru með gott lið en við vörðumst mjög vel. Bæði mörkin voru glæsileg og það var mikilvægt að halda hreinu," sagði Martinez.
Athugasemdir
banner
banner
banner