mið 03. janúar 2018 11:26
Magnús Már Einarsson
Barcelona ekki búið að bjóða í Coutinho
Coutinho á sprettinum.
Coutinho á sprettinum.
Mynd: Getty Images
BBC segir frá því í dag að ekkert sé til í slúðri þess efnis að Barcelona hafi lagt fram nýtt tilboð í Philippe Coutinho leikmann Liverpool.

Fréttir frá Spáni segja hins vegar að Barcelona sé að undirbúa tilboð sem félagið ætlar að leggja fram á næstu dögum.

Hinn 25 ára gamli Coutinho vill sjálfur ganga í raðir Barcelona en Liverpool hafnaði þremur tilboðum í hann í sumar.

Síðasta tilboð Barcelona í sumar hljóðaði upp á 118 milljónir punda en 30 milljónir punda af þeirri upphæð áttu að vera árangurstengdar.

Samkvæmt frétt BBC þarf Barcelona að hækka tilboð sitt og sleppa því að hafa greiðslurnar árangurstengdar til að Liverpool hlusti á nýtt tilboð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner