Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. janúar 2018 15:54
Elvar Geir Magnússon
Coutinho ekki með gegn Everton
Coutinho spilar ekki í grannaslagnum.
Coutinho spilar ekki í grannaslagnum.
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho mun missa af leik Liverpool gegn Everton á föstudaginn þar sem hann er enn að glíma við meiðsli í læri.

Coutinho vonast til að ganga í raðir Barcelona í þessum mánuði en hann missti af sigrinum nauma gegn Burnley á nýársdag vegna meiðsla.

Liverpool verður einnig án Coutinho í grannaslagnum á föstudag en hann er í ensku bikarkeppninni.

Coutinho var í dag á Melwood, æfingasvæði Liverpool, til að fá aðhlynningu vegna meiðsla sinna.

Mohamed Salah missti einnig af leiknum gegn Burnley og óvissa er með þátttöku hans í leiknum gegn Everton.

Væntanlegt er nýtt tilboð frá Barcelona í Coutinho en það þarf um 130 milljónir punda til að Liverpool íhugi að selja. Liverpool vill halda Coutinho til sumars en leikmaðurinn vill fara í janúarglugganum samkvæmt Guardian.
Athugasemdir
banner
banner
banner