James McClean, leikmaður WBA, skoraði mark liðsins í 2-1 tapi gegn West Ham í gær.
Á sama tíma og McClean spilaði leikinn í London létu þjófar greipar sópa á heimili hans.
Á sama tíma og McClean spilaði leikinn í London létu þjófar greipar sópa á heimili hans.
Þjófarnir rústuðu íbúð McClean og ófögur sjón blasti við honum þegar hann kom heim eftir leikinn.
Á meðal þess sem þjófarnir tóku var sjónvarp og úr sem kostar 26 þúsund pund eða 3,7 milljónir íslenskar krónur.
Fleiri fótboltamenn hafa orðið fyrir barðinu á innbrotstþjófum á meðan þeir spila en á meðal þeirra eru Sadio Mane og Dejan Lovren hjá Liverpool sem og Wayne Rooney.
Athugasemdir