Marco Silva, stjóri Watford, segist vilja styrkja leikmannahópinn í janúar er Watford berst um að vera í efri helming deildarinnar.
Watford byrjaði tímabilið afar vel en gengið hefur dalað mikið undanfarnar vikur og er félagið 13 stigum frá evrópudeildarsæti.
Watford byrjaði tímabilið afar vel en gengið hefur dalað mikið undanfarnar vikur og er félagið 13 stigum frá evrópudeildarsæti.
Abdoulaye Doucoure hefur verið einn af lykilmönnum Watford og er búinn að vekja áhuga nokkurra stórliða.
„Doucoure er samningsbundinn okkur til langs tíma og við ætlum okkur alls ekki að selja hann, sérstaklega ekki í janúar," sagði Silva.
„Það hefur ekkert formlegt tilboð borist í leikmanninn og stjórn félagsins er búin að lofa að enginn þurfi að vera seldur í janúar.
„Við þurfum að bæta leikmannahópinn, við megum ekki missa lykilmenn, sérstaklega ekki á miðju tímabili."
Athugasemdir