Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. janúar 2018 18:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Valverde: Virðum að Coutinho spilar fyrir annað lið
Sögur um Coutinho eru komnar aftur á fullt.
Sögur um Coutinho eru komnar aftur á fullt.
Mynd: Getty Images
Samkvæmt fréttum á Spáni er Barcelona að undirbúa tilboð í Philippe Coutinho, leikmann Liverpool.

Coutinho var sterklega orðaður við Barcelona síðastliðið sumar og bað um sölu frá Liverpool svo hann gæti komist til Barcelona. En hann fór ekki þangað.

Hann hefur verið að spila frábærlega með Liverpool á leiktíðinni en nú þegar opnað hefur verið fyrir félagsskiptagluggann á nýjan leik hafa sögur farið aftur á kreik.

Ernesto Valverde, stjóri Barcelona, var spurður út í Coutinho á blaðamannafundi í dag.

„Coutinho spilar fyrir annað lið og er frábær leikmaður fyrir það lið. Hvort hann spilar fyrir Barca í framtíðinni, veit ég ekki," sagði Valverde við spennta blaðamenn.

„Ég kann mjög vel við leikmennina sem eru hérna og ef annar leikmaður kemur í framtíðinni, þá er ég viss um að sá hinn sami sé mjög góður leikmaður líka."

„Ég hef ekkert meira að segja um Coutinho núna. Hann spilar fyrir annað félag og við virðum það."
Athugasemdir
banner
banner
banner