Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. febrúar 2016 20:15
Óðinn Svan Óðinsson
Adebayor: Stuðningsmennirnir strax byrjaðir að elska mig
Adebayor
Adebayor
Mynd: Getty Images
Hinn afar geðþekki Emmanuel Adebayor sem nýverið gekk í raðir Crystal Palace eru fullur sjálfstrausts og segist spenntur að vera mættur á Selhurst Park.

Hinn 31 árs gamli Adebayor kom inná sem varamaður þegar liðið tapaði fyrir Bournemoth í gærkvöldi og náði ekki að setja mark sitt á leikinn, þrátt fyrir að hafa fengið fín færi.

Adebayor sagði í samtali við Sky að hann væri í góðu leikformi og bætti því við að hann væri vel meðvitaður um þær væntingar sem Alan Pardew gerir til hans.

„Ég hef ekkert að sanna, ég vil bara njóta þess að spila fótbolta. Stuðningsmennirnir eru strax byrjaðir að elska mig og ég verð að gera mitt besta,” Sagði Adebayor.
Athugasemdir
banner
banner
banner