Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. febrúar 2016 22:55
Óðinn Svan Óðinsson
Guus Hiddink: Áttum skilið að vinna
Guus Hiddink
Guus Hiddink
Mynd: Getty Images
Guus Hiddink þjálfari Chelsea var allt annað en sáttur við að fá aðeins eitt stig út úr viðureign liðsins gegn Watford nú í kvöld.

Fyrrum lærisveinn Hiddink, Heurelho Gomes var öflurgur í leiknum og varði oft á tíðum frábærlega og það kom Hiddink ekki á óvart.

“Gomes á skilið að vera valinn maður leiksins, hann varði oft á tíðum stórkostlega í leiknum og var lykill að stigi Watford “ sagði Hiddink.

Eden Hazard kom seint inná í leiknum og aðspurður sagði Hiddink að það hefðu ekki verið mistök.

“Við vildum hafa völd á leiknum og settum hann inná þegar það voru 20 mínútur eftir. Hann hefur verið mikið meiddur og við þurfum að fara varlega með hann,
” sagði Gus Hiddink að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner