Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 03. febrúar 2016 19:24
Óðinn Svan Óðinsson
Ítalski boltinn: Emil byrjar hjá Udinese
Emil Hallfreðsson
Emil Hallfreðsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Níu leikir fara fram í kvöld í Seria A deildinni á Ítalíu og ber þar hæst leikur Lazio og Napoli.

Udinese, sem landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson gekk nýlega til liðs við fer í heimsókn til Empoli og er okkar maður að sjálfsögðu í byrjunarliði Udinese.

Udinese er í 15. sæti deildarinnar og aðeins 6 stigum frá fallsæti og þarf því nauðsynlega á sigri að halda.

Ríkjandi meistarar, Juventus taka móti Genoa og geta með hagstæðum úrslitum komist á toppinn.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner