Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 03. febrúar 2016 23:05
Óðinn Svan Óðinsson
Margrét Lára með fernu gegn ÍR
Margrét Lára elskar að skora mörk
Margrét Lára elskar að skora mörk
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Margrét Lára Viðarsdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk í kvöld þegar Valskonur unnu 7-0 sigur á ÍR í B-riðli Reykjavíkurmóts kvenna.

Margrét hefur eins og við var að búast byrjað með látum hjá Val og hefur skorað átta mörk í fyrstu þremur leikjunum sínum fyrir liðið á undirbúningstímabilinu.

Eins og áður segir unnu Valskonur ÍR 7-0 en auk Margrétar skoruðu þær Málfríður Anna Eiríksdóttir, Vesna Elísa Smiljkovic og Bergrós Lilja Jónsdóttir sitt markið hvor.

Eftir leikinn er Valur á toppi B riðils í Reykavíkurmótsinu með 9 stig eftir 3 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner