Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 03. febrúar 2016 19:18
Óðinn Svan Óðinsson
Pato inn í Meistaradeildarhóp Chelsea á kostnað Falcao
Mynd: Getty Images
Radamel Falcao, framherji Chelsea á Englandi, var ekki valinn í Meistaradeildarhóp liðsins fyrir 16-liða úrslitin.

Félagið staðfesti þetta í dag en þeir mæta Paris Saint-Germain í 16-liða úrslitum keppninnar seinna í mánuðinum

Alexandre Pato sem Chelsea fékk á dögunum frá Santos í Brasilíu tekur sæti Falcao í hópnum.

Hvorki gengið hefur né rekið hjá Falcao síðan hann gekk til liðs við Chelsea og má teljast ansi líklegt að þetta verði fyrsta og eina tímabil leikmannsins hjá félaginu.

Hópurinn: Asmir Begovic, Branislav Ivanovic, Cesc Fabregas, Kurt Zouma, Baba Rahman, Oscar, Eden Hazard, Pato, John Mikel Obi, Thibaut Courtois, Bertrand Traore, Kenedy, Pedro, Loic Remy, Diego Costa, Matt Miazga, Nemanja Matic, Willian, Gary Cahill, John Terry, Jamal Blackman, Cesar Azpilicueta
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner