Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. febrúar 2016 17:55
Elvar Geir Magnússon
Vidal höfðar mál gegn Bild
Vidal fagnar með Robert Lewandowski.
Vidal fagnar með Robert Lewandowski.
Mynd: Getty Images
Arturo Vidal, miðjumaður Bayern München, opinberar það á Twitter að hann hefur látið lögfræðinga sína hefja málaferli gegn þýska blaðinu Bild.

Vidal sakar Bild um að sverta mannorð sitt með því að birta ósannar fréttir og hefur Bayern München lýst yfir stuðningi við leikmann sinn.

Bild heldur því fram að Vidal hafi átt við agavandamál að stríða í æfingaferð Þýskalandsmeistarana til Katar en í frétt blaðsins segir að hann hafi verið iðinn við að yfirgefa liðshótelið til að skvetta í sig áfengi.

Þá hefur verið fjallað um að líkamlegt ástand hans sé ekki viðunandi fyrir leikmann sem spilar fyrir stórlið Bayern München.

Vidal segist vera 100% trúr og tryggur félagi sínu.

Statememt. Arturo Vidal

A photo posted by Arturo Vidal (@kingarturo23oficial) on



Athugasemdir
banner
banner
banner