Heimild: MBL
Mbl greindi frá því seint í gær að Jónína G. Óskarsdóttir hafði náð magnaðri mynd af því þegar Liverpool-fuglinn birtist norðurljósunum.
Myndin hefur vakið athygli víða um heim þar sem stuðningsmenn Liverpool eru duglegir við að deila henni áfram.
Myndin hefur vakið athygli víða um heim þar sem stuðningsmenn Liverpool eru duglegir við að deila henni áfram.
Jónína tók margar myndir af norðurljósum um helgina en áttaði sig ekki á því hversu lík ljósin væru fuglinum fyrr en vinur hennar benti á það.
,,Myndin var tekin fyrir leikinn við Manchester City svo að fólk tók þessu sem skýru tákni," sagði Jónína, en Liverpool vann deildarmeistarana í Man City um helgina.
Myndina má sjá hér ásamt öðrum mögnuðum norðurljósamyndum úr smiðju Jónínu.
Athugasemdir