þri 03. mars 2015 12:00
Magnús Már Einarsson
Móðir kærustu Adam Johnson: Hann er 100% saklaus
Mynd: Getty Images
Adam Johnson er saklaus af ásökunum um að hafa sofið hjá 15 ára stúlku en þetta segir móðir kærustu hans.

Johnson og Stacey Flounders hafa verið saman í þrjú ár og í byrjun árs kom fyrsta barn þeirra í heiminn.

Johnson var handtekinn á heimili sínu í gær en hann er sakaður um að hafa sofið hjá 15 ára stúlku á dögunum.

Móðir Stacey segir að Johnson sé saklaus af þessum ásökunum.

,,Hann er 100% saklaus og við munum standa við bakið á honum," sagði móðir Stacey.

,,Hann hefur ekki fundist sekur um neitt. Hann er frábær strákur sem hefur ekki gert neitt rangt. Þetta er hrikaleg staða."

Hinn 27 ára gamli Johnson er laus úr haldi lögreglu gegn tryggingu en rannsókn á máli hans stendur yfir.

Á meðan rannsóknin er í gangi hefur Sunderland sett Johnson í tímabundið bann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner