Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 03. mars 2015 12:47
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Lofa að Terry verður hjá Chelsea á næsta tímabili
Fer ekki fet.
Fer ekki fet.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segist geta lofað því að John Terry verði áfram hjá félaginu næsta vetur.

Hinn 34 ára gamli Terry verður samningslaus í sumar og óvissa hefur verið í kringum framtíð hans.

Mourinho segist ekki vera í vafa um að Terry verði áfram hjá Chelsea.

,,Terry mun fá nýjan samning," sagði Mourinho á fréttamannafundi nú rétt í þessu.

,,Ég get fullvissað ykkur um að John Terry verður leikmaður Chelsea á næsta tímabili. Ég get lofað því."
Athugasemdir
banner
banner
banner