Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. mars 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
Myndi synda til Barcelona
Mikill sundkappi.
Mikill sundkappi.
Mynd: Getty Images
Paulo Dybala, framherji Palermo, er heldur betur opinn fyrir því að ganga í raðir Barcelona.

Dybala hefur skorað tólf mörk í Serie A á þessu tímabili og hefur fyrir vikið verið orðaður við mörg af stærstu félögum Evrópu.

Þessi 21 árs gamli leikmaður segir að draumurinn sé að fara til Barcelona.

,,Ég myndi synda til Barcelona ef þeir hefðu áhuga," sagði Dybala.

,,Ég þyrfti ekki einu sinni að fara í sundföt. Ég þyrfti bara að fara yfir miðjarðarhafið."
Athugasemdir
banner
banner