Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   þri 03. mars 2015 20:00
Alexander Freyr Tamimi
Sannfærður um að Van Gaal vinni titla með United
Getur Van Gaal leitt United til dáða?
Getur Van Gaal leitt United til dáða?
Mynd: Getty Images
Daryl Janmaat, hægri bakvörður Newcastle, er sannfærður um að Louis van Gaal muni vinna titla með Manchester United.

Janmaat lék undir stjórn Van Gaal hjá hollenska landsliðinu og efast ekki um gæði samlanda síns þegar kemur að þjálfun.

,,Þeir eru með frábært lið og magnaða leikmenn," sagði Janmaat.

,,Van Gaal er líka frábær. Hann þarf bara smá tíma. Hann er ennþá frekar nýr og ég er sannfærður um að með tímanum mun hann vinna titla með Manchester United."

,,Hann er frábær þjálfari og hefur átt stórkostlegan feril. Ég er mjög heppinn að hafa unnið með honum og ég gæti ekki sagt um hann slæmt orð."

,,Hann er einn besti þjálfari sem ég hef starfað með og taktískt er hann snillingur. Hann virðist alltaf vita hvernig á að vinna leik."


Athugasemdir
banner
banner
banner