Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 03. mars 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Football Italia 
Tevez: Ég hermdi bara eftir Pirlo
Mynd: Getty Images
Carlos Tevez skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu þegar Juventus gerði jafntefli við Roma í toppslag ítalska boltans í gær.

Tevez segist hafa lært þetta af miðjumanninum snjalla Andrea Pirlo, sem er heimsþekktur fyrir magnaðar aukaspyrnur.

,,Ég reyni alltaf að herma eftir því sem Pirlo gerir, það er mjög mikilvægt að fylgjast með spyrnutækni hans á æfingum," sagði Tevez við Sky Sport Italia.

Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus, var reiður út í sína menn eftir leikinn vegna slakrar frammistöðu á lokakaflanum og er Tevez sammála þjálfaranum.

,,Við hefðum ekki átt að gefa Roma mark þegar við vorum manni fleiri. Þjálfarinn hefur allan rétt á að vera reiður eftir leikinn, við vorum hræðilegir síðustu 20 mínútur leiksins."
Athugasemdir
banner
banner
banner