Enski framherjinn Ben Everson hefur gengið til liðs við BÍ/Bolungarvík.
Hinn 25 ára gamli Everson skoraði grimmt með Tindastóli fyrri hlutann á síðasta tímabili og í kjölfarið fékk Breiðablik hann í sínar raðir í júlí en hann lék með Blikum út sumarið.
Undanfarna mánuði hefur Everson leikið með York City í ensku D-deildinni en tímabilinu þar er nú lokið.
Everson er mættur á Ísafjörð og verður með BÍ/Bolungarvík þegar liðið mætir Völsungi í fyrstu umferðinni í fyrstu deild í næstu viku.
Everson uppalinn hjá Middlesbrough en hann hefur einnig leikið í Bandaríkjunum á ferli sínum.
Athugasemdir