Fimm leikjum var að ljúka í ensku Úrvalsdeildinni og ljóst er eftir úrslit dagsins að Fulham og Cardiff eru fyrstu liðin til að falla úr deildinni.
Fulham tapaði stórt fyrir Stoke á útivelli og gekk Felix Magath ekki að halda liðinu uppi eins og hann lofaði.
Fulham tapaði stórt fyrir Stoke á útivelli og gekk Felix Magath ekki að halda liðinu uppi eins og hann lofaði.
Aron Einar Gunnarsson, Ole Gunnar Solskjær og félagar hjá Cardiff féllu eftir tapleik á útivelli gegn Newcastle United þar sem mikil mótmæli gegn Alan Pardew voru í gangi.
Sunderland er komið í góða stöðu í fallbaráttunni eftir þriðja sigur sinn í röð í deildinni, gegn Manchester United á Old Trafford.
Manchester United 0 - 1 Sunderland
0-1 Sebastian Larsson ('30)
Stoke City 4 - 1 Fulham
1-0 Peter Odemwingie ('39)
2-0 Marko Arnautovic ('54)
3-0 Oussama Assaidi ('73)
3-1 Kieran Richardson ('80)
4-1 Jon Walters ('82)
Newcastle 3 - 0 Cardiff
1-0 Shola Ameobi ('18)
2-0 Loic Remy ('88)
3-0 Steven Taylor ('91)
Aston Villa 3 - 1 Hull City
1-0 Ashley Westwood ('1)
1-1 J Bowery ('28, sjálfsmark)
2-1 Andreas Weimann ('41)
3-1 Andreas Weimann ('45)
Swansea 0 - 1 Southampton
0-1 Rickie Lambert ('93)
Athugasemdir