Tottenham 0 - 1 Manchester City
0-1 Sergio Aguero ('29 )
0-1 Sergio Aguero ('29 )
Manchester City heimsótti Tottenham í seinni leik dagsins í enska boltanum.
Leikurinn fór fram í skugga fagnaðarláta annars Lundúnarliðs en Chelsea tryggði sér Englandsmeistaratitilinn nokkrum mínútum áður en flautað var til leiks á White Hart Lane.
Sergio Aguero gerði eina mark leiksins en hann var allt í öllu í sóknarleik Man City eins og oft áður.
Samir Nasri átti ekkert sérstaka innkomu í lið Man City en hann kom inn af bekknum á 73.mínútu fyrir Frank Lampard og þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla nokkrum sekúndum síðar. Spurning hvort Frakkinn hafi gleymt að hita upp.
Mikilvægur sigur fyrir Manuel Pellegrini og liðsmenn hans í baráttunni um 2.sætið en Arsenal leikur gegn Hull annaðkvöld.
Athugasemdir