„Ég er ánægður með sigurinn," sagði Ólafur Karl Finsen eftir 1-0 útisigur Íslandsmeistara Stjörnunnar gegn ÍA.
Ólafur skoraði eina markið með glæsilegu aukaspyrnumarki.
Ólafur skoraði eina markið með glæsilegu aukaspyrnumarki.
Lestu um leikinn: ÍA 0 - 1 Stjarnan
„Það skiptir ekki máli hvort markið var flott, bara að við náðum að skora fleiri mörk en andstæðingurinn."
„Ég hef verið svo slæmur í mjöðminni síðan ég var 15 ára að ég hef aldrei getað æft."
Hann var svo spurður að því hvort þetta hafi verið torsóttur sigur.
„Tors... hvað þýðir það?" spurði Ólafur en viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir