sun 03. maí 2015 21:48
Elvar Geir Magnússon
Spánn: Valencia vann og er í fjórða sæti
Mynd: Getty Images
Öllum leikjum dagsins í spænsku deildinni er lokið. Elche lyfti sér upp í þrettánda sæti með sigri á Malaga sem er í því áttunda.

Granada vann mikilvægan sigur en er enn í fallsæti, þremur stigum frá öruggu sæti. Getafe sem er í 14. sæti lá í valnum.

Valencia er í fjórða sæti, Meistaradeildarsæti, en liðið vann Eibar 3-1. Eibar er aðeins einu stigi fyrir ofan fallsæti.

Malaga 1 - 2 Elche
0-1 Jonathas ('29 )
0-1 Duda ('75 , Misnotað víti)
0-2 Mario Pasalic ('89 )
1-2 Javi Guerra ('90 )
Rautt spjald:Przemyslaw Tyton, Elche ('71)

Getafe 1 - 2 Granada CF
0-1 Youssef El-Arabi ('14 , víti)
1-1 Pedro Leon ('45 )
1-2 Youssef El-Arabi ('59 )

Valencia 3 - 1 Eibar
1-0 Nicolas Otamendi ('25 )
2-0 Daniel Parejo ('56 )
3-0 Paco Alcacer ('71 )
3-1 Mikel Arruabarrena ('84 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner