Þórir Guðjónsson, leikmaður Fjölnis skoraði eina markið í leik liðsins gegn ÍBV í dag, hann kláraði þá vel eftir undirbúning Ólafs Páls Snorrasonar. Þórir var að vonum ánægður í leikslok.
Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 0 ÍBV
„Ég er hrikalega ánægður, þetta var baráttu sigur, við þurftum virkilega að hafa fyrir þessu, við vorum að gera vel og alveg eins og Gústi lagði upp fyrir okkur," sagði Þórir.
„Þeir voru ekki að skapa sér mikið af færum í fyrri hálfleik en þeir vöknuðu til lífsins eftir að þeir fengu markið á sig."
Þórir skoraði eina mark leiksins og var ánægður með að hafa komist á blað.
„Það var virkilega fínt, það var bara bónus að hafa komist á blað."
Athugasemdir