Cristiano Ronaldo tók þátt í æfingu Real Madrid í morgun en franski sóknarmaðurinn Karim Benzema var hvergi sjáanlegur.
Óvíst er með þátttöku hans í seinni leiknum gegn Manchester City sem fram fer í Madríd annað kvöld. Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í fyrri leiknum en sigurliðið á morgun kemst í sjálfan úrslitaleikinn.

Benzema fór af velli í hálfleik í fyrri leiknum en hann hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri.
Ronaldo var hinsvegar með alla æfinguna í morgun og allt bendir til þess að hann verði í góðum gír á morgun.
Athugasemdir