Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 03. maí 2016 15:34
Magnús Már Einarsson
Eyþór Helgi til Noregs (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eyþór Helgi Birgisson hefur gengið til liðs við Volda sem leikur í norsku D-deildinni.

Eyþór Helgi komst á dögunum að samkomulagi um að losna undan samningi hjá Fram.

Eyþór Helgi lék 13 leiki með Fram í fyrra og skoraði þrjú mörk.

Þessi 27 ára gamli framherji hefur einnig leikið með Víkingi Ólafsvík, HK, ÍBV og Ými á ferli sínum.

Eyþór hefur samtals skorað 45 mörk í 129 leikjum í deild og bikar á ferlinum.
Athugasemdir
banner
banner