Marouane Fellaini og Robert Huth, leikmenn Manchester United og Leicester, hafa fengið ákæru frá enska knattspyrnusambandinu.
Fellaini og Huth lenti saman þegar boltinn var víðsfjarri í leik liðanna á sunnudag.
Huth togaði í hárið á Fellaini sem gaf olnbogaskot til baka eins og sjá má hér að neðan. Útlit er fyrir að leikmennirnir fari núna í þriggja leikja bann fyrir vikið.

Fellaini missir þá af þeim þremur leikjum sem Manchester United á eftir í ensku úrvalsdeildinni en nær bikarúrslitaleiknum gegn Crystal Palace.
Huth missir af þeim tveimur leikjum sem Leicester á eftir sem og fyrsta leik á næsta tímabili.
No love lost between Huth and Fellaini. https://t.co/knqoKsCQJ2
— Arsène's Son (@hughwizzy) May 1, 2016
Athugasemdir