Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 03. maí 2016 21:19
Óðinn Svan Óðinsson
Myndband: Simeone sló aðstoðarmann
Simeone er blóðheitur
Simeone er blóðheitur
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid sýndi skemmtilega takta í kvöld þegar hann sló starfsmann Atletico félagsins.

Simeone stýrði liði sínu í úrslitaleikinn á heimavelli Bayern Munchen í kvöld þegar liðið tapaði 2-1.

Simeone sem er afar blóðheitur lét stressið hlaupa með sig í gönur og sló til starfsmanns Atletico Madrid þegar hann var að undirbúa skiptingu.

Argentínumaðurinn var hreinlega truflaður undir lok leiks og missti stjórn á skapi sínu sem var afar skrautlegt.

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan, sjón er sögu ríkari.



Athugasemdir
banner
banner