Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   þri 03. maí 2016 22:07
Óðinn Svan Óðinsson
Simeone: Vítaklúðrið gaf okkur líflínu
Simeone er flottur þjálfari
Simeone er flottur þjálfari
Mynd: Getty Images
Hin skrautlegi Diego Simeone var að vonum ánægður eftir að hans menn tryggðu sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld.

Diego fagnaði sigrinum ógurlega þegar dómari leiksins flutaði til leiksloka en Argentínumaðurinn er þekktur fyrir fátt annað en ástríðu.

„Ég átti mjög erfitt með að halda inni gleðinni enda ótrúlegur leikur,“ sagði Simeone eftir leikinn í kvöld.

„Bayern Munchen spiluðu frábærlega í fyrri hálfleiknum en vítið sem þeir klúðruðu gaf okkur líflínu. Vítaklúðrið hjá Torres var auðvitað mjög vont fyrir okkur en á endanum var þetta eins og spennandi bíómynd.“

Annað kvöld ræðst það svo hvort það verður Real Madrid eða Manchester City sem mæta Simeone og félögum í Milano.
Athugasemdir
banner
banner
banner