Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
   fös 03. júní 2016 12:22
Magnús Már Einarsson
Myndband: Tóti í Íslenska draumnum leikur mark hjá landsliðinu
Tóti fer á kostum í auglýsingunni.
Tóti fer á kostum í auglýsingunni.
Mynd: Thule
Árið 2000 sló Tóti í gegn sem karakter í kvikmyndinni Íslenski draumurinn.

Frægt atriði í þeirri mynd er þegar Tóti leikur sókn hjá Manchester United en það gerir hann á Laugardalsvellinum.

Tóti er nú mættur aftur á Laugardalsvöllinn þar sem hann leikur sigurmark Kolbeins Sigþórssonar fyrir íslenska landsliðið í fyrra.

Tóti tekur sóknina alla og leikur hana af stakri snilld. Um er að ræða auglýsingu fyrir Thule.

Sóknina í heild má sjá hér að neðan. Sjón er sögu ríkari!


Slapp
banner