Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 03. júlí 2015 21:30
Stefán Haukur
Montoya til Inter (Staðfest)
Martin Montoya.
Martin Montoya.
Mynd: Getty Images
Montoya hefur gert tveggja ára lánssamning við Inter Milan en félagið hefur rétt á að kaupa hann þegar samningnum líkur. Þetta staðfesti félagið rétt í þessu.

Montoya hefur aldrei fest sig almennilega í sessi í byrjunarliði hjá Barcelona en hann hefur oftast þurft að víkja fyrir Dani Alves.

Montoya mætti til Milan í gærkvöldi til að fara í læknisskoðun.

„Það er frábært að fá Martin til Inter!“ sagði Erick Thohir, forseti Inter, í viðtali við vefsíðu félgasins.

„Liðið okkar er að verða sterkara og sterkara með hverjum degi sem líður og við munum halda áfram að bæta við leikmönnum,“ bætti hann við.

Montoya er annar leikmaðurinn sem Inter fær til sín í dag en Murillo gekk til liðs við félagið fyrr í dag.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner