„Þetta er fyrst og fremst mjög mikilvægt fyrir okkur, að halda okkur inni í mótinu. Ef við hefðum tapað þessum leik hefði verið ansi langt upp,” sagði Tommy Nielsen þjálfari Grindavíkur eftir 2-3 sigur gegn Þór á Þórsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 3 Grindavík
„Við byrjuðum ekki nógu vel, þetta var svolítið mikið af löngum boltum en eftir 15-20 mínútur tókum við boltann niður. Ég veit ekki hvort það er út af þessari löngu ferð en við spiluðum vel síðusta hálftímann í fyrri hálfleik, skoruðum 3 mörk en fengum reyndar á okkur eitt pirrandi mark í lokin,” sagði Tommy einnig.
„Það er erfitt að spila á móti Þór, þeir koma rosalega grimmir inn í leikina og eru rosalega góðir í því sem þeir gera. Margir langir boltar inn í teiginn og þeir eru með góða stráka þar sem er erfitt að halda frá markteignum.”
Nánar er rætt við Tommy í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir