Gunnleifur Gunnleifsson átti frábæran leik í marki Breiðabliks í kvöld.
Blikar þurfti að sætta sig við 2-1 tap gegn Íslandsmeisturum FH í Pepsi-deild karla í kvöld, en Gunnleifur var besti maður Blika.
Í skýrslu sinni velur Magnús Þór Jónsson, Gunnleif sem næst besta mann vallarins í kvöld.

Aðeins Kristján Flóki Finnbogason, sem skoraði bæði mörk FH, var betri að mati Magnúsar.
„Í þessum leik var hann einfaldlega geggjaður og hélt sínu liði inni í leiknum allan tímann," segir um frammistöðu Gulla í skýrslunni.
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson fylgdist með leiknum í kvöld og hann var yfir sig hrifinn af sínum gamla félaga í landsliðinu. Sömu sögu er að segja af fyrirliðanum, Aroni Einari Gunnarssyni.
Hér að neðan má sjá tíst frá þeim félögum.
@GulliGull1 👏👏👏👏
— Aron Einar (@ronnimall) July 3, 2017
@GulliGull1 vá! 😍🔥
— Hannes Halldórsson (@hanneshalldors) July 3, 2017
Ekki gleyma @GulliGull1, hann var rosalegur. Credit where credit is due.
— Hannes Halldórsson (@hanneshalldors) July 3, 2017
Athugasemdir