Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 03. ágúst 2015 14:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Antolin Alcaraz í Las Palmas (Staðfest)
Antolin Alcaraz
Antolin Alcaraz
Mynd: Getty Images
Las Palmas hefur fengið fyrrverandi Everton og Wigan leikmanninn Antolin Alcaraz.

Alcaraz kemur á frjálsri sölu en samningur hans við Everton rann út en hann spilaði í tvö ár hjá félaginu.

Hinn 33 ára varnarmaður á 24 landsleiki með Paragvæ en hann skrifar undir eins árs samning við Las Palmas.

Las Palmas er í efstu deild Spánar í fyrsta skipti í 13 ár en þeir komust upp ásamt Real Betis og Sporting Gijon á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner