Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 03. ágúst 2015 09:00
Magnús Már Einarsson
Aron Jóhannsson orðaður við Werder Bremen
Aron í leik með bandaríska landsliðinu.
Aron í leik með bandaríska landsliðinu.
Mynd: Getty Images
Werder Bremen vill fá framherjann Aron Jóhannsson í sínar raðir frá AZ Alkmaar en þýska blaðið Bild greinir frá þessu.

Werder Bremen er sagt vilja fá Aron til að fylla skarð Franco Di Santo sem fór frá félaginu á dögunum.

Félögin eiga þó eftir að ná samkomulagi um kaupverð. AZ Alkmaar vill fá fimm milljónir evra fyrir Aron en Werder Bremen vill bara borga fjórar.

Ef samkomulag næst um kaupverð er Aron með fjögurra samning á borðinu frá Werder Bremen.

Aron ólst upp hjá Fjölni en hann fór til AGF árið 2010 áður en AZ Alkmaar keypti hann árið 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner