Gary Cahill, varnarmaður Chelsea býst við að Arsenal verði í titilbaráttunni á leiktíðinni.
Englendingurinn var í viðtali eftir 1-0 tap liðsins gegn Arsenal í Samfélagsskyldinum í gær.
„Þeir byjuðu betur, þeir eru með góðan hóp og ég held þeir verði í titilbaráttu í ár."
„Leikurinn var unninn á góðu einstaklingsframtaki, en við sköpuðum fleiri færi."
„Mér fannst við vera meira með boltann en mörkin skipta máli," sagði Cahill.
Athugasemdir