Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 03. ágúst 2015 08:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Diego Costa gæti misst af byrjun leiktíðar
Diego Costa
Diego Costa
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, þjálfari Chelsea, segir að Diego Costa gæti misst af byrjun leiktíðar vegna meiðsla.

Spánverjinn var ekki með gegn Arsenal í Samfélagsskyldinum þrátt fyrir að Mourinho hafi sagt fyrir leik að hann myndi spila.

Mourinho segir nú að framherjinn gæti misst af heimsókn Swansea á laugardaginn.

„Ég veit ekki hvort Diego Costa muni vera tilbúinn í byrjun leiktíðar. Hann var smá meiddur eftir Barcelona leikinn. Eftir það æfði hann eðlilega og við héldum að hann væri tilbúinn. Honum leið hins vegar illa í dag," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner