Everton ætlar ekki að selja John Stones en þetta segir þjálfari liðsins, Roberto Martinez.
Chelsea, Manchester City og Manchester United eru öll talin hafa áhuga á leikmanninum en Chelsea hefur boðið tvisvar í hann.
Jose Mourinho hefur sagt að hann ætli ekki að bjóða aftur í Stones en Everton neitaði boði upp á 28 milljónir punda í síðasta mánuði.
„Það er lið sem eiga mikla peninga útaf Meistaradeildinni en Everton hefur unnið deildina níu sinnum."
„Við erum stór klúbbur og við viljum byggja áfram og einbeita okkur af framtíðinni. Stones er einn af betri varnarmönnum Evrópu og við ætlum ekki að selja," sagði Martinez.
Athugasemdir