mán 03. ágúst 2015 14:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gomes hefur trú á að Watford geti endað ofarlega
Haurelho Gomes
Haurelho Gomes
Mynd: Getty Images
Haurelho Gomes segir að Watford geti gert frábæra hluti undir Quique Flores, þjálfara liðsins.

Watford byrjar deildina á Goodison Park gegn Everton á laugardag en þetta er í fyrsta skipti í sjö ár sem liðið er í úrvalsdeildinni.

Liðið hefur fengið til sín 11 nýja leikmenn og er Gomes spenntur að sjá hvað liðið getur gert.

„Flores reynir alltaf að fá það besta út úr leikmönnum. Hann þekkir fótbolta og er hefur mikla reynslu, ég hef trú á að við getum gert frábæra hluti með honum."

„Með hópinn sem við höfum núna þá höfum við mikla möguleika á að enda ofarlega, en maður veit ekki. Úrvalsdeildin er erfið en við höfum mikið sjálfstraust," sagði fyrrverandi Tottenham maðurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner