mán 03. ágúst 2015 18:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Inter hefur áhuga á Felipe Melo
Felipe Melo.
Felipe Melo.
Mynd: Getty Images
Roberto Mancini, þjálfari Inter segist hafa áhuga á að fá Felipe Melo til liðsins frá Galatasaray.

Inter ætlar að halda áfram að styrkja sig og bæta sig frá því á síðustu leiktíð er liðið endaði í áttunda sæti.

Mancini viðurkennir að þessi fyrrverandi leikmaður Juventus gæti komið með margt í liðið sitt á miðjunni en segir jafnframt að það gæti verið erfitt að fá hann frá tyrkneska liðinu.

„Melo gæti bætt Inter en hann er undir samning hja Galatasaray þannig við þurfum að bíða og sjá."

Mancini tjáði sig einnig um framtíð Gary medel og Yuto Nagatomo, leikmenn liðsins.

„Við munum ekki selja Medel en við þurfum að selja einhverja leikmenn þar sem við getum bara verið með 25 í hópnum en Medel er ekki að fara. Við gætum hins vegar selt Yugo Nagatomo," sagði Mancini.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner