Robert Lewandowski vill skora 100 mörk í Bundesligunni sem fyrst.
Pólverjinn er búinn að skora 91 mark í 162 leikjum í deildinni fyrir Bayern og Dortmund.
Framherjinn skoraði 17 mörk á fyrstu leiktíðinni sinni hjá Bayern en hann vill komast upp í 100 mörk samanlagt, á leiktíðinni og spila betur.
„Ég vissi að fyrsta leiktíðin yrði ekki mín besta," sagði Lewandowski. Ég er glaður að ég skoraði svona mikið og spilaði mikið."
„Vonandi verður þessi leiktíð ennþá betri. Nú er kominn tími á að sýna hvað ég get."
„Ég veit ég get spilað betur og skorað mörk. Hundrað mörk í Budnesligunni væri fallegt. Vonandi get ég það sem fyrst," sagði pólska markamaskínan að lokum.
Athugasemdir