Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 03. ágúst 2015 10:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Origi: Liverpool getur átt mjög góða leiktíð
Divock Origi
Divock Origi
Mynd: Getty Images
Divock Origi er sannfærður um að Liverpool gæti átt mjög góða leiktíð en þeir hefja leik næstu helgi gegn Stoke.

Belginn hefur skorað tvisvar á undirbúningstímabilinu en hann var á láni hjá Lille á síðustu leiktíð.

„Ég hef byrjað vel og er byrjaður að finna taktinn, hraðinn er mikill í Englandi og það þarf að aðlagast."

„Ég er ánægður með að hafa skorað og mig hlakkar til að byrja. Við getum átt mjög góða leiktíð en hópurinn er mjög samheldinn," sagði Belginn ungi.
Athugasemdir
banner