Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 03. ágúst 2015 13:02
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo gaf umboðsmanni sínum eyju
Ronaldo og Mendes.
Ronaldo og Mendes.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, stórstjarna Real Madrid, gaf umboðsmanni sínum, Jorge Mendes, gríska eyju í brúðkaupsgjöf.

Ronaldo þekkir grísku eyjarnar vel frá sumarfríum sínum en ljóst er að kostnaðurinn hleypur á milljónum evra.

Herra Mendes og Sandra urðu hjón við stóra athöfn sem fram fór í Portúgal í gær. Sir Alex Ferguson var meðal gesta.

Ferguson keypti Ronaldo 2003 til Manchester United og þar lék Portúgalinn til 2009. Hann hefur þrívegis unnið gullknöttinn sem besti leikmaður heims.

Ronaldo var svaramaður í brúðkaupinu en meðal annarra gesta voru Florentino Perez, forseti Real Madrid, og Roman Abramovich, eigandi Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner